Tinna Sveita Pjalla

bloggað úr sveitinni .....

01.12.2007 22:04:23 / tido

..... i have a dream.....

Eftir að hafa verið að lesa helling af bloggum hjá öryrkjum skoppaði upp gamall draumur í kollinn. Málið er að síðan ég var lítil hefur mig alltaf langað til þess að vera með einhverjum sem að á ekki fjölskyldu yfir jólin, eða bjóða einhverjum heim ! Þar sem að ég er óendanlegt jólabarn þá get ég ekki ýmindað mér hvernig það er að vera einn og yfirgefin yfir jólin ! og ég geri mér alltaf betur og betur grein fyrir því hvað ég er rík, og þá er ég ekki að tala um fjárhagslega heldur rík af fjölskyldu og vinum og fólki sem að þykir vænt um mig bara almennt :D

 Draumurinn minn er semsagt sá að td. fá einhverskonar aðstöðu yfir jól, að maður geti boðið þeim sem að eiga enga að til sín, haft mat, jólatré og jafnvel gistiaðstöðu. Þó að það væri ekki nema bara matur og spjall á eftir. Fyrir þá sem að eiga enga að, eða komast ekki til ættingja og sjá fram á það að vera einir um jólin, gætu komið, bara til þess að vera ekki einir yfir þessa hátíð.  

Hvað ætli það taki langann tíma að, eða meira ætli það gangi einhverjir fleirri með þennan draum í maganum? Er kannski eitthvað svona virkt sem að ég get komist með í ?  

Kannksi er þetta kjánalegur draumur fyrir jólabarn, og kannski er þetta bara barnalegt, en ég vona ekki og ég vona innilega að mér takist einhverntímann að uppfylla þennann draum

  Kv Tinna með stóra hjartað


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.11.2007 23:21:39 / tido

þar sem að samvisku blogg virkar ekki .. prufum þetta

skrifiði nafnið ykkar :

A: Heitur/Heit

Á: gó&6eth;/ur í rúminu

B: Magnaður kyssari

C: ágætur kyssari

D: skemmtilegur deitari

Ð: er nörd á góðan hátt

E: getur lamið þig í klessu

É: með flott brjóst/sixpack

F: brjálað fólk elskar þig

G: elskar að brosa og hlæja

H: fáránlega heitur/heit

I: elskar að gilla

Í: er húmoristi

j: er mjög kósý

K: æðisgengin/nn

L: mjög góður kyssari

M: hefur fallegustu augun

N: auðvelt að verða ástfangin af

O: hefur einn fallegasta persónuleika sem til er

Ó: er kaldhæðin/nn

P: vinsæl/ll hjá allskonar fólk

Q: dýravinur

 R: er með flottan rass

S: fær fólk til að hlægja

T: bros sem að bræðir mann

U: er mjög kynþokkafull/ur

Ú: er hnakki/hnakkamella

V : er ekki fordómafull/ur

Y: hefur fallegar hendur

Þ: er ástríðufull/ur

Æ: finnst aldur afstæður

Ö: er hræðilegur bílstjóri


» 2 hafa sagt sína skoðun

31.10.2007 18:25:58 / tido

....

jæja nú gat ég eiginlega ekki annað en bloggað  !

ég var að lesa fréttirnar á mbl.is og þar var verið að ræða hvort að krónan og bónus væru með verðsamráð !  haha þetta er nú bara með þvi kjánalegra sem að ég hef heyrt ! ég held að það sé enginn séns á því. EN hinsvegar annað sem að var rætt þarna líka og það var að ódýrustu vörurnar væru faldar, það er alveg hárrétt.. ég veit ekki hversu oft verslunarstjórar og stærri yfirmenn komu til mín og sögðu mér hvað mætti vera í mikilli framstillingu og hvað ekki, hverju við værum að græða á og hverju við værum að tapa á ! einnig man ég eftir því að ef eitthvað var alveg ótrúlega ódýrt þá var ekki verðiði við vöruna, nema náttúrulega að hún væri auglýst. og með verðkannananirnar þá veit ég ekki hversu oft það komu meil sem að inni héldu annað hvort verðbreitingar vegna krónunnar, eða verðbreitingar vega verðkannana! ! En nóta bene... það var kannski ef að það var vitað að eitthvað svoleiðis væri í gangi, en þetta er náttúrulega eins og allur annar bransi. T.d ef að það kemur matargagnrýnandi inn á veitingarstað og lætur vita af sér, auðvitað fara þjónarnir inn í eldhús og láta vita að gagnrýnandinn situr á ákveðnu borði.

en ég var að horfa á Gumma Marteins í Kastljósi áðan, og uss hvað kallinn er sannfærandi! Sigmar reyndi eitthvað að rakka bónus niður en shit hvað kallinn stóð á sínu, ég var kannski aðeins efins þegar ég heyrði þetta fyrst en núna er ekki vafi í mínum kolli ! og þetta með að starfsmenn krónunar og Bónus væru að hittast og bera saman bækur, ég bara kemst ekki yfir það hvað þetta er heimskulegt. Ég allavegana upplifði það þannig þegar ég var bónus starfsmaður að það væri eiginlega bara rígur á milli fyrirtækjanna !

En ég hef ekki meira um þetta að segja, allavegana ekki í bili !

á meðan ég man, það er komið í ljós að ég flyt aftur í Rvk þegar jólaprófin eru búin, en ég fer í síðasta prófið mitt 14. des þannig að ég stefni á það að koma heim bara 14 eða 15 des :D:D og ég er líka búin að ákveða það að ég ætla að flytja aftur heim til mömmu :S ég sagðist ekki ætka að fara þangað aftur, en þetta er bara til bráðabyrgða. og ég held að það verði bara kósý og ég er ekki frá því að systkin mín verði alveg ágætlega sátt ;)

jæja ég er að hugsa um að fara að læra þannig að ég segi bara yfir og út ! þangað til næst ;D


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.10.2007 15:43:10 / tido

...

Ahh jæja ... ég ætti kannski að hætta að böggast út í það að aðrir bloggi ekki :S þar sem að ég er eiginlega alltaf í tölvunni en blogga aldrei !

þeir sem hafa talað við mig eitthvað nýlega vita að tölvan mín bilaði. Sem að er svosum ekki frásögu færandi nema útaf þjónustunni sem að maður fær hjá Tölvulistanum. Ég bara verð aðeins að pústa, málið er að ég nottlega eins og flestir vita, bý ekki í Reykjavík ! þannig að ég þurfti að fara með tölvuna mína í bæinn og biðja hann fósturpabba minn um að fara með hana í tölvulistann fyrir mig. Það tók gaurana þar heila viku að komast að því hvað var að henni, og það tók þá aðra viku að panta varahlutinn í hana. Og af því að þeir þurfa að panta alla varahluti að utan, en eiga engann lager !!!, þá þarf ég að bíða í aðrar 2-3 vikur. við erum að tala um það að ég keypti tölvuna í júli  ! ég er búin að eiga hana í tæpa 4 mánuði og ég þarf að bíða í heilan mánuð eftir að það verði gert við hana. og það sem meira er að þeir áskila sér þann rétt að gera við tölvuna 2-3 áður en þeir láta mann fá nýja ! Nota bena þeir taka alltaf svona langann tíma í að gera við tölvurnar ! það getur vel verið að ég sé bara svona erfiður kúnni en þetta þykir mér alveg Hryllilega slöpp þjónusta. og það var ekki fyrr en ég hringdi og reif kjaft að þeir buðust til að láta mig fá láns tölvu á meðan. Ingó reyndar hringdi líka, og þá ældu þeir því útúrsér að allar lánstölvurnar væru úti  !þannig að ég þurfti að bíða í viku eftir henni ! ! ! er þetta þjónusta ? eða er ég bara svona erfiður kúnni ?


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.10.2007 20:11:30 / tido

....

jæja ! blogga?  ætla að reyna!

Núna er hún Elína mín barasta farin frá mér ! og ég er eiginlega ekkert allt of sátt við það. Af því að það þýðir að ég hef ekkert að gera td. í hádegisgatinu mínu. En ég hef samt Togga minn, en það er samt ekki eins, það er alltaf gott að hafa eina svona stelpu vinkonu:haha:

En núna er eiginlega búið að negla það niður að ég kem aftur í bæinn þegar jólaprófin eru búin hérna. Þá ætla ég og Toggi að fara að leigja saman. Þannig að núna er bara málið að finna eitthvað húsnæði og út frá því ákveða hvaða skóla mig langar í.... af því að ég er alveg ákveðin í því að fara í skóla áfram og klára þetta bara ! og það er farið að kitla mig aðeins að fara og læra meira og ferðamálafræði hljómar ótrúlega spennandi !

en núna verð ég að fara að læra, svo að ég nái þessari önn með smá sóma 8)


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.09.2007 11:03:07 / tido

.....

jæja ... ég veit ekki alveg afhverju ég er alltaf að rembast við að blogga hérna, það skoðar þetta enginn! en ég er samt að pæla í að halda þessu áfram :)

haha ég var að skoða gamla bloggið mitt, og þó að ég segi sjálf frá þá var ég bara nokkuð hressandi bloggari, þannig að mitt markmið er að verða það aftur og fá einhver viðbrögð hingað inn

ég hef alltaf talið mig svona frekar góðan bílstjóra, ekkert framúrskarandi, en ekki skítaléleg heldur. ég hef allavegana nokkru sinnum náð að klóra mig úr snjóskafli á flötum sumardekkjum, og það ein ! en allavegana ég komst að því á þriðjudagskvöldið að ég kannski ofmat mig aðeins :^)   málið var að ég og Elína vorum að rúnta og ákváðum að hringja í Togga og bjóða honum í ævintýraferð :) sem að áttu ekki að vera neitt stórkostlegt, í rauninni bara trikk til þess að ná honum út. EN! Við ákváðum að keyra út á Horn, þið sem vitið hvað það er þá ok , ef ekki þá ok. svo þegar við vorum komin þangað keyrðum við að stórum sandskafli sem að var á miðjum veginum, við vorum búin að fara yfir 2 litla, þannig að ákveðið var að reyna. Annað hvort yrðum við að fara mega hratt eða mega hægt. Eins og ég er þá ákvað ég nottlega að fara hratt :haha: við komumst yfir hálfann skaflinn og þá vorum við bara FÖST :$ við reyndum eitthvað að losa okkur, en eina sem að við fengum úr því var að festa okkur betur. þannig að þegar bílinn var alveg kominn á magann í sandinum ákváðum við að hringja í Bjarna Valgeir (sem er að vinna á Kaffi Horninu) og láta hann koma og kippa okkur í burtu. þegar við vorum búin að bíða eftir honum í svona 30 mín ákváðum við að tékka á honum aftur, en nei þá var hann enn að vinna þannig að eina sem að við gátum gert var að hringja í Ingó sem að er björgunarsveitarmaður með meiru :$ eftir svona 40 mín kom Ingó á RIIISA jeppa með einhverja jeppakalla með sér og kippti okkur í burtu. Þannig að við sátum í bílnum í einhverjum sandskafli í einn og hálfann tíma niður við sjó :whut: en þetta var samt ævintýri :haha:

Elína mín er ein af þessum mega jákvæðu, og hún er búin að vera á bensínljósinu í nokkra daga, og bílinn hennar var farinn að hiksta af bensínleysi áðan, en nei "sko ég hef oft keyrt bílinn svona og hann á alveg nóg eftir"  þannig að ég sagði bara ok , en var ekki alveg viss og var alltaf að skjóta því að henni að við gætum farið á bílinn minn, en ´hún sagði alltaf að þetta væri ekkert mál. EN eins og ég vissi þá varð bílinn bensínlaus uppí óslandi (þeir sem vita hvar það er ok, þeir sem ekki ok) og veðrið í dag er ekki svo kósi þannig að við ákváðum að labba ekki í bílinn minn þar sem að hann var svolítið frá okkur, þá ákváðum við að hringja í hann Togga. Hann var að vinna og ætlaði að koma á vinnubílnum. Nema hvað, Ingó var á bílnum eitthvað að "skreppa" þannig að við þurftum að bíða í svona góðann klukkutíma uppí óslandi að horfa á bátana

þannig að ég er eiginlega viss um það að þegar við keyrum suður á morgun á POTT ÞÉTT eitthvað eftir að gerast, sprungið dekk eða eitthvað svona skemmtilegt, en samt ekkert alvarlegt, það er ekkert ævintýri, það er eiginlega bara leiðinlegt

en ég held að þetta sé nóg um bílaævintýri í bili, þannig að gott fólk, vonandi hittumst við um helgina :haha:


» 4 hafa sagt sína skoðun

22.09.2007 13:53:36 / tido

hvað á ég að gera við mig ?

ég er búin að komast að því að ég er alveg óþolandi afbrýðissöm ! og ég gjörsamlega HATA það ! skil ekki afhverju ég er svona ! ég reyni eins og ég get að vera það ekki .. en það kraumar alltaf inní mér einhver svona pirringur og afbrýðissemi ! hvað á ég að gera ??? hvað get ég gert????

» 1 hafa sagt sína skoðun

20.09.2007 10:35:03 / tido

...

jæja ... þá er það komið í ljós .. ég, eða við fengum húsið, eeeeen við hættum við, og aðal ástæðan fyrir því er að eg bara veit ekki hvað ég ætla að gera eftir áramót, í rauninni er ég bara að lifa bara einn dag í einu nuna, og veit að ég verð í skólanum til næstu áramóta og þa er allt sem að ég veit. Langar að vera hérna og klára skólann, en mig langar líka að fara í bæinn og klára skólann þar. Ég samt veit ekki hvort að ég geti sinnt skólanum nógu vel í bænum

en þetta kemur allt í ljós ! Sóley er allavegana ekki að fara að flytja hingað í bili.


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.09.2007 23:41:58 / tido

..

jæja ég fór og skoðaði húsið áðan. Þetta er fínasta hús, soltið gamalt samt, en hefur sinn sjarma með því. Þetta hljómar allt saman mjög vel, það má vera með hunda þarna :haha::haha: . En við erum ekki einar um það að hafa verið að skoða þannig að þetta verður allt að koma í ljós! Hún sagist ætla að hafa samband í kringum helgina, rétt fyrir eða rétt eftir ! þannig að ég og náttúrulega sóley bíðum spenntar og með krossaða putta ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.09.2007 15:32:07 / tido

..

jæja hvað segiði á ég kannski að fara að blogga eitthvað af viti ?

það er svosum ekkert merkilegt búið að gerast hjá mér undanfarið, ég er bara að reyna eins og ég get að standa mig í skólanum, og standa mig i vinnunni. það kemur reyndar fyrir að ég sameini báða hlutina það er að segja klára öll mín verkefni í vinnunni og ef það er rólegt þá fer ég að læra ! já pælið í þessu þvílíkur dugnaður :D

Svo er hann Toggi að fara að koma allveg heim á klakann, þessi elska, ég er eiginlega búin að sakna hans alveg helling, ekki það að ég sé eitthvað mega mikið með honum, en þegar hann er ekki á staðnum þá barasta vantar eitthvað :S

Það er í myndinni að ég sé að fara að leigja hús hérna á Hornafirði ! pælið í því tveggjahæða einbýlishús, 95 fermetra er á 75 þús á mánuði, og það þykir dýrt ! en til þess að ég geti leigt það þá þarf hún Sóley mín að koma til mín ! sem að er mjög sterklega inni í myndinni. En mér finnst það eiginlega bara frábært, að fá einhvern hingað sem að bara ég þekki, og það er einhvernveginn miklu auðveldara að kynnast fólki þega maður er með einhvern með sér til þess að bakka sig upp.

en ein svona vangavelta. Ég tel mig hafa verið mjög heppna með uppeldisforeldra, þ.e.a.s með hana mömmu mína og fósturpabba. Ekki það pabbi minn er ágætur líka en hann bara á við sinn sjúkdóm að stríða. En það sem að ég ætlaði að segja að ég heyrði ljóta sögu um daginn. þar er móðir sem að missti áhuga á börnunum sínum, og sinnir þeim ekkert ! sem betur fer voru þau tekin af henni og færð annað. Þegar ég heyri svona fæ ég alltaf sting í hjartað og þakka kærlega fyrir mína foreldra, já já getur vel verið að þetta sé væmið en só bí it !

en annars er ég bara að taka mig á að innan og utan í alla staði, og það gengur bara mjög vel en ætla ekki að lofa neinu, þetta kemur allt með kalda vatninu hægt og rólega. Fór samt í palla tíma í gær (ójá pallatíma, old fashion erobikk pallatíma) og það var bara þvílikt gaman en samt ótrúlega erfitt. En hey maður verður víst að vinna fyrir betri heilsu 8)

jæja ég held að þetta sé gott í bili ..

ps. er að fara að skoða húsið í kvöld, sendi kannski inn línu um hvernig þetta hljómar ! ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

29.08.2007 14:40:30 / tido

prufiði þetta...... virrkar ótúlegt en satt

EKKI SVINDLA MEÐ ÞVÍ AÐ SKRUNA NIÐUR SÍÐUNA STRAX!
Þetta tekur ekki meira en mínútu og þú reiknar þetta saman um leið og þú lest ...


1.  Byrjaðu á því að velja þér tölu, þ.e. hversu oft í viku þú viljir fara út að borða.  Talan verður að vera hærri en 1 og lægri en 10.


2.  Margfaldaðu þessa tölu með 2 (svona bara til að gera þetta áhugavert)

3.  Bættu við 5


4.  Margfaldaðu útkomuna með 50.


5.  Ef þú hefur þegar átt afmæli á árinu, bættu við 1757 .

Ef ekki, bættu við 1756.


6.  Dragðu nú fæðingarárið þitt frá, fjögurra stafa tala.


Nú ætti þú að eiga eftir þriggja stafa tölu.


Fyrsta talan er upprunalega talan þín, þ.e. hversu oft í viku þú vilt fara út að borða.

Næstu tvær tölurnar eru


ALDUR ÞINN ! -------- (Ó, JÁ !!!!)


ÞETTA VIRKAR AÐEINS Á ÞESSU ÁRI (2007) ÞANNIG AÐ DREIFÐU ÞESSU MEÐAN HÆGT ER


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.08.2007 19:20:29 / tido

skóli skólii

Jæja búin að skrá mig í skólann ! !  og velja áfanga :D:D fæ reyndar ekki nema 19 einingar inn .. er ekki alveg svo sátt við það, hefði viljað fá meira til þess að klára þetta sem fyrst  !!!

en já .. fór á Fiskidaginn um helgina, og vá hvað það var gaman ! þetta var samt eiginlega bara ættarmót, en hey vitiði hvað, því eldri sem maður er því skemmtilegra verður á svona ættarmótum!

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

29.07.2007 17:08:38 / tido

ég hringi á eftir !

þessi setnig gjörsamlega ómar í kollinum á mér... ég er alltaf að fá hana, og getiði hvað ! það er ALDREI hringt til baka ... ég veit að ég er stundum svona, en ég vara fólk við og segi þvi að hringja ef því fer að lengja eftir mér !

en allavegana... ég er komin með nýtt framtíðarplan, held ég barasta, það er að klára menntaskólann og flytja svo til Ástralíu með Togga og Ella ... og bara vera þar chilla vinna bara til þess að eiga fyrir mat og bjór ! hvernig hljómar?

þetta er bara eitthvað sem að mig hefur alltaf dreymt um ! ég hef ekki hætt að hugsa um þetta síðan að Toggi nefndi þetta við mig ! !


» 3 hafa sagt sína skoðun

26.07.2007 14:12:09 / tido

sofa, hvað er það ?

ég held að ég sé búin að toppa sjálfa mig í svefni, eða þannig lagað ... er búin að sofa ógeðslega mikið undanfarið ! td. fór i útilegu í fyrradag, fór að sofa um 8 vaknaði aftur um 12 þegar ég kom heim ætlaði ég að leggja mig í smá stund en svaf frá 14:30 til 21:30 ! ! !  svo fór ég aftur að sofa um 4 leitið og svaf til 13:00 og átti erfitt með að vakna! hvað er eiginlega að ? ég virðist bara getað sofið og sofið og sofið

en já nóg um það! útilegan sem að ég fór í í fyrradag var staffa djamm við fórum bara eitthvert upp í sveit í einhvern dal, fundum okkur tjaldstæði hliðiná einhverri rétt :D hentum upp tjöldunum, gerðum holu fyrir grill/varðeld og helltum í okkur, og þetta var alveg ótrúlega gaman! við fórum í leiki og allt ... við hlupum í skarðið og fórum í eitur í flösku :D og svo var það sama manneskjan sem að var fulli gaurinn, leiðinlegi gaurinn og dauði gaurinn en það var hún Elína mín, ekki að þið vitið hver það er.

ég er orðin svo tvístíga aftur um hvað ég á að gera í vetur, mig langar að vera hérna og mig langar að fara í bæinn, en ég held samt að ég verði hérna, langar bara að finna mér íbúð, ég nenni ekki að búa í þessu posnu litla herbergi sem að ég er í núna, en það er bara ekki ein íbúð á skrá hérna, það leigðust bara allar íbúðir hérna  ! hvað er það , allir að fá sömu humynd og ég ?

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
skóla